Þétting byggðar hefur á­hrif á í­þrótta og tóm­stunda­starf

Undanfarin misseri höfum við séð ríka áherslu Kópavogsbæjar í þá átt að þétta byggð. Stórt hverfi er að rísa í kringum Smáralindina og fyrir ofan Bæjarlind er verið að byggja mörg háhýsi auk þess sem mikið hefur fjölgað á Kársnesi síðustu ár og sér ekki fyrir endann á því. Til að auka enn meira á þéttinguna þá eru fyrirhugaðar háhýsabygginar og stóraukinn íbúafjöldi á Hamraborgarsvæðinu og þar í kring í svokölluðum Traðareitum. Þétting kallar á aukna þjónustu og það að innviðir á þéttingasvæðum geti tekið við nýjum íbúum og sinnt þeirra þörfum. Og helstu áhyggjur mínar snúa einmitt að þessu. Þess sér til dæmis hvergi stað að búið sé að hugsa stöðu leikskóla, grunnskóla og tómstunda í næsta nágrenni við þessa þéttingarreiti? Hvergi. Í miðju Smárahverfinu er íþróttamiðstöð fjölgreina íþróttafélags sem er t.d. með fjölmennustu knattspyrnudeild landsins sem er núna þegar þetta er ritað 50-60% stærri en sú næst stærsta. Þó aðstaðan þar sé glæsileg og líti vel út þá blasir það við að hún nær ekki að anna þörfinni og á næstu árum mun börnum fjölga umtalsvert í nærliggjandi hverfum og mörg þeirra munu eflaust leita niður í Smárann. Á bara að sjá til og redda þessu einhvern veginn? Eða hvar eru framtíðaráætlanir um frekari uppbyggingu aðstöðunnar til að mæta þessari stórauknu þörf? Þarf mögulega að dreifa tómstundum meira um bæinn eða þurfa íþróttafélögin í bænum að fara að beita fjöldatakmörkunum til að tryggja gæði starfseminnar. Á Kársnesi er búið að þétta mjög mikið á undanförnum árum en þar hafa innviðirnir algjörlega setið á hakanum og íbúar þar fá engin svör hvenær bætt verði úr. Hvar eru t.d. leiksvæðin? Nú virðist eiga að halda áfram víðar um bæinn á svipuðum nótum eins og rætt var hér að framan og það er full ástæða til að hafa áhyggjur af þessari þróun. Skynsamlegra væri að klára innviðauppbyggingu áður en farið er að hrúga fólki inn í þéttingarreitina? Vinir Kópavogs vilja hugsa þetta upp á nýtt og byrja á réttum enda. Innviðina fyrst og síðan hóflega þéttingu í sátt við íbúa. X-Y fyrir allan Kópavog.

 

Hákon Sverrisson

ÞJÁLFARI OG GRUNNSKÓLAKENNARI