Með lögum skal land byggja – þ.m.t. Kópavog!

Vinir Kópavogs urðu til sem félagsskapur Kópavogsbúa sem var óánægður með verklag bæjarins í skipulagsmálum. Skipulagsstofnun og Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafa gagnrýnt og ógilt vinnubrögð bæjarins í þeim efnum. Sveitarstjórnarráðuneytið hefur til meðferðar fjölmargar ábendingar um brot bæjarins við framkvæmd skipulagsmála og Umboðsmaður Alþingis fylgist með. Bæjaryfirvöld halda engu að síður ótrauð áfram, sem er óviðunandi. Kópavogsbúar eiga rétt á því að yfirvöld þeirra fari að lögum. Þá kröfu gera Vinir Kópavogs og hún er kjarninn í málatilbúnaði þeirra, Vinir Kópavogs eru ekki venjuleg stjórnmálahreyfing. Vinir geta verið til hægri eða vinstri í pólitík eða einhverstaðar þar á milli án þess að láta það koma upp á milli sín. Vinir Kópavogs eiga það sammerkt að vilja bænum sínum það besta, þ. á m. að yfirvöld hans fari að reglum. Listi Vina Kópavogs er skipaður frábæru fólki, sem býr að margskonar reynslu sem mun nýtast vel við stjórn bæjarins. Enn merkilegra er kannski að enginn er á listanum til þess að fullnægja eigin metnaði í stjórnmálum. Frambjóðendur vilja einfaldlega vinna Kópavogi og Kópavogsbúum vel. Kópavogur er frábær og þar býr frábært fólk sem á skilið frábær yfirvöld. Fjölgun hefur hvergi á landinu verið viðlíka og í Kópavogi liðna áratugi. Yfirvöld hafa kunnað þá list að brjóta ný svæði til byggðar nokkuð vel. Það er hinsvegar farið að sneiðast verulega um ný svæði. Fjölgun til frambúðar verður mest með þéttingu. Yfirvöldum hafa verið mislagðar hendur við þéttingu og þar þarf nýtt verklag. Það ætla Vinir Kópavogs að taka upp. Vinir Kópavogs bjóða þá sem í bæinn vilja flytjast velkomna. Þeirra vegna og hinna sem fyrir eru þarf það að gerast í sátt og samlyndi. Það næst best með samráði, eins og mælt er fyrir um í skipulagslögum. Samráð á að fela í sér raunverulegt samtal, ekki bara hak í reiti – helst þannig að íbúar taki ekki eftir. Sá háttur hefur verið á hafður undanfarið. Athugasemdir sem fram koma eru svo virtar að vettugi. Þessu ætla Vinir Kópavogs að breyta. Þeir vilja nota skipulag til þess sem það er ætlað, að tryggja íbúum mannvænt umhverfi til búsetu. Þess vegna eru sveitarstjórnarmál svo spennandi – sé rétt á haldið verða ákvarðanir til þess að auka lífsgæði íbúanna. Þannig ákvarðanir ætla Vinir Kópavogs taka. Þess vegna ætla ég að setja X við Y til bæjarstjórnar Kópavogs.

 

Gunnar Jónsson

hæstaréttarlögmaður