Forðumst skipulagsslysin

Þessa dagana hópast fólk saman og mótmælir valdníðslu, hroka og spillingu stjórnvalda. Og ekki að ósekju. Mörgum er heitt í hamsi og efalítið líka þeim sem alla jafna hafa sig ekki mikið í frammi; fylgjast með mótmælunum úr fjarlægð heima í stofu og tuða við sjálfa sig eða aðra ef svo ber undir. Hafa kannski ekki nennt að setja sig nægilega vel inn í málin til að geta lagt opinberlega orð í belg. Eins og ég til dæmis. Kópavogsbúi nánast alla mína ævi. Hvorki sérstaklega pólitísk né mikill forystusauður, það verður að viðurkennast. Núna gegnir þó öðru máli, enda sannfæringin slík að ég fæ ekki orða bundist. Sú sannfæring snýst um að hin óflokksbundnu samtök Vinir Kópavogs með æskuvinkonu mína, Helgu Jónsdóttur, í fararbroddi, sé eina framboðið í sveitarstjórnarkosningunum í Kópavogi árið 2022 sem ég treysti til að forða bænum frá því að færa fjárfestum stjórn skipulagsmála á silfurfati með augljósum og hörmulegum afleiðingum. Þétting byggðar án skipulagðar þjónustustarfsemi við íbúana, háhýsi sem bæði skyggja á sólu og valda vindstrengjum, skortur á útivistarsvæðum og fyrirhuguð íbúðabyggð sem verulega takmarkar aðgengi að náttúruperlum bæjarins svo fátt eitt sé talið er ekki beinlínis þekkileg tilhugsun. Orðin valdníðsla og spilling koma upp í hugann. Helga, oddviti á lista Vina Kópavogs, er lögfræðingur að mennt og á að baki glæstan starfsferil sem stjórnandi hér heima og erlendis. Efalítið þekkja fáir lög sem um stjórnun sveitarfélaga betur en Helga og ég treysti því að hún berjist með oddi og egg gegn því að þau verði brotin í okkar góða heimabæ. Framboð hennar og félaga hennar á lista Vina Kópavogs er ekki stökkpallur til frekari frama, heldur helgast af hugsjón og því hversu vænt þeim þykir um bæinn sinn og vilja vinna honum vel. Þau tala hvorki tæpitungu né rósamál eða beita þeim undanbrögðum og útúrsnúningum sem okkur kjósendum finnst oft afskaplega þreytandi og ótraustvekjandi í pólitískri orðræðu. Ég treysti Vinum Kópavogs til að koma í veg fyrir þau gríðarlegu skipulagsslys sem áform eru um í gamla miðbænum í Hamraborg, á strandlengjunni vestast á Kársnesi og búast má við hvar sem möguleikar finnast til að þétta byggð. Sjálf er ég vitaskuld Vinur Kópavogs og þakklát öllu því góða fólki sem gefur kost á sér til starfa fyrir bæjarbúa undir merkjum listans. Fái þau til þess afl trúi ég að þau muni láta verkin tala. Nú er tækifærið fyrir okkur öll að kjósa Y-listann, Vini Kópavogs.

 

Valgerður þ. Jónsdóttir

fyrrverandi blaðamaður