Vinir Kópavogs þurfa að láta til sín taka
Um mitt ár 2020 fluttum við hjónin úr austurhluta Reykjavíkur í vesturhluta Kópavogs. Sögðum skilið við kröfuharðan garð og viðhaldsfrekt einbýlishús eins og margir á okkar aldri. Fundum okkur nýtt athvarf í velstaðsettu fjölbýli á nýjum þróunarreit.
Skömmu síðar upphófust kynni okkar af skipulagsleysi skipulagsyfirvalda í okkar nýja sveitarfélagi. Skipulagsráð samþykkti að grendarkynna deiliskipulagsbreytingu. Í yfirskirft auglýsingar var skipulagsbreytingin sögð eiga við Auðbrekku 9-11, en þegar að var gáð reyndist breytingin eiga fyrst og fremst við Dalbrekku 2-14, en þær lóðir liggja að hvor annarri. Ætla má að margir hinna nýju íbúa í Dalbrekku 2-14 hafi hugsað sem svo að þessi breyting snerti þá ekki og hent bréfinu með tilkynningunni í ruslakörfuna.
Við hjónin vorum ekki sátt við allar þær breytingar sem boðaðar voru. Reyndar sýndi nánari eftirgrennslan að verktakinn hafði unnið samkvæmt hinu ósamþykkta og þar með ólögmæta skipulagi allan tímann! Við sendum inn athugasemd og fengum léttvæg svör. Málið endaði fyrir Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sem kvað upp þann úrskurð í febrúar 2021 að „..felld er úr gildi ákvörðun Bæjarstjórnar Kópavogsbæjar frá 9. október á deiliskipulagi fyrir lóðina Auðbrekku 9-11“. Rökstuðningur ákvörðunarinnar er harkalegur áfellisdómur yfir verklagi Kópavogsbæjar: Deiliskipulag ekki unnið í samræmi við ákvæði reglugerðar, uppdráttur sem sýndur er í grendarkynningu nær ekki til allra breytinga sem gerðar eru, ekki sagt frá að dvalarsvæði í inngarði sé skert með fjölgun bílastæða, sagð að lóð stækki til suðurs þegar hún er stækkuð til norðurs, sagt að 245 fermetra bygging sé vestan við hús sem hún er raunverulega austan við, auk þess sem húsnúmer og hæð húsa stemma ekki við gildandi skipulag. Sumar þessara vitleysa eru klaufalegri en aðrar. Að norður breytist í suður og austur í vestur gæti verið vegna þess að sá sem samdi greinargerð hafi snúið teikningunni vitlaust á borðinu fyrir framan sig. Hin atriðin eru alvarlegri.
Þetta er persónuleg reynsla okkar hjóna. Svo hef ég heyrt af reynslu fólksins í Hamraborginni sem er með fjölda mála í gangi hjá Úrskurðarnefndinni. Að ekki sé minnst á skipulag Suðurlandsvegarins sem liggur innan lögsögu Kópavogsbæjar í Lögbergsbrekku. Þar felldi fyrrnefnd nefnd framkvæmdaleyfi bæjarins úr gildi eftir að framkvæmdir voru hafnar með ærnum tilkostnaði fyrir alla hlutaðeigandi. Sá kostnaður hefði sparast hefði verklag bæjarins verið betra.
Ég leyfi mér að draga þá ályktun að þessi persónulega reynsla afhjúpi vinnulag í skipulagsmálum sem þjónar ekki hagsmunum íbúa og almennings. Þess vegna þótti mér vænt um að vera boðið að sitja á lista hjá Vinum Kópavogs. Vinir Kópavogs vilja að skipulag sé fyrir fólk en ekki verktaka, að skipulag skili umgjörð fyrir gott og gjöfult og skemmtilegt mannlíf. Ég vil hvetja alla Kópavogsbúa sem vilja lifandi, manneskjulegan og skemmtilegan bæ til þess að setja X við Y á laugardaginn.