Er gaman að búa í kópavogi?
Það var ævintýraheimur að flytjast í Kópavoginn 1960. Allt í kring voru nýbyggingar að rísa innan um litlu fallegu bústaðina sem hýstu fólk sem hafði hrakist úr Reykjavík þegar þar var hvergi húsaskjól að finna. Þetta var alvöru sjálfsbjargarfólk sem ræktaði sinn eigin garð og hjálpaðist að. Þetta var líka hugsjónafólk sem tókst með útsjónarsemi og ómældri sjálfboðavinnu að tryggja Kópavogi flest það sem prýða má einn bæ. Þau byggðu skóla, félagsheimili, kirkju, stofnuðu tónlistarskóla, skólalúðrasveit, gæsluvelli, bókasafn o.fl.
Þegar bærinn fékk árið 1955 kaupstaðaréttindi var ákveðið að 1% af útsvarstekjum bæjarins skyldi renna til lista- og menningarráðs. Enda blómstraði menningin og metnaðaðurinn svo eftir var tekið. Kópavogsbúar voru t.d. stórtækari við kaup á glæsilegum listaverkum en öll nágrannasveitafélögin til samans. Alltaf var vandað til hátíðarhalda, hvort sem það var afmælisdagur bæjarins, þjóðhátíðardagurinn 17. Júní, vorhátíðir sem voru fastur liður um allan bæ eða sumardagurinn fyrsti. Nú í ár, í fyrsta skipti í 67 ár ákvað bæjarstjórn að fella niður hátíðarhöld í Kópavogi á sumardaginn fyrsta og heyrst hefur að bærinn ætli líka að snuða okkur um 17. júní og bjóða bara upp á litlar hverfishátíðir. Erum við virkilega svona lítil og tíkarleg? Þessir dagar eru nauðsynlegir til að tengja okkur Kópavogsbúa saman, Vatnsendann við Kársnesið, Smárann við Snælandið o.sfrv. Mig langar að eiga tækifæri að hitta alla gömlu vinina, samkennara og gamla nemendur í Kópavogi – ekki í nágrannasveitarfélögunum. Er þetta kannski of kostnaðarsamt fyrir bæinn?
Naumt skammtað til lista og menningarstarfs
Mér skilst að lista og menningarráð fái tæpar 30 milljónir til að styðja listalíf í bænum en það er aðeins tæpar 800 kr á mann. Er þetta ekki frekar aumkunarvert af sveitarfélagi sem telur sig til fyrirmyndar í rekstri? Getum við virkilega ekki gert betur?
Sú var tíð eftir að Salurinn, tónlistarhús Kópavogs var tekinn í notkun, að öll grunnskólabörn fóru á tónleika a.m.k. tvisvar á ári. Allir áttu að finna að Salurinn var þeirra og þangað áttu þau erindi. Það var ekið reglulega með nemendur út um hvippinn og hvappinn í allskonar vettvangsferðir, heimsóknir á söfn og leikhús en allt þetta heyrir nú sögunni til. Bærinn telur sig ekki hafa efni á að splæsa í rútur.
Menning er dýr fjárfesting en hún er ómetanleg og hún er gríðarlega stórt réttlætismál sem bæjaryfirvöldum ber að standa vörð um. Skólarnir eiga að fá tækifæri og fjármuni til að stuðla að jöfnuði barna og tryggja þeim öllum aðgengi að fjölbreyttum menningarviðburðum. Þá verður enn skemmtilegra að fara í skólann og örugglega skemmtilegra að búa í Kópavogi. Mikið vona ég að áherslurnar breytist með næstu bæjarstjórn. Vandið því valið á laugardaginn. Verum öll Vinir Kópavogs.
Þórunn Björnsdóttir
Fyrrverandi tónmenntakennari og kórstjóri í Kópavogi